30.4.2006 | 10:15
Til hamingju!
Til hamingju bláklæddu vinir. Það bærðist tár á hvarmi undirritaðs er hann sá að Frammarar hefðu tryggt sér langþráðan íslandsmeistaratitill. Vel gert.
En hvernig skyldi standa á þessum góða árangri? Komið hefur í ljós að Frammarar beyttu harla óvenjulegum aðferðum en árangursríkum. Svo virðist sem leikmenn liðsins hafi dulbúnir sem eróbic-gellur púlað stíft í heilsusölum borgarinnar á undirbúningstímabilinu. Glæsilegt þetta eru menn sem þora, vilja og fá.
Enn og aftur til hamingju.
Kveðja Matthias
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2006 | 20:00
Spartakus orðaðir við nýjan leikmann(aftur)
Nú þegar tímabilið nálgast þá fer það að verða um seinan fyrir lið að styrkja hópinn fyrir komandi átök.
Enn og aftur eru hinir síöflugu Spartakusmenn orðaðir við nýjan leikmann. En sá leikmaður er einmitt kona. Ekki er það þó frásögu færandi nema hversu sterkur leikmaður hún er og hefur heyrst að hún geti borið uppi heilu varnirnar þegar þolið er á þrotum hjá meðspilurum í lok leikja. Hún heitir Magdalena Orest(fjallabúi) og er talið að þjálfari Spartakus hugsi hana sem svokallaða supersub. Hún getur spilað allar stöður á vellinum en þó eru hennar sterkustu í miðverðinum og sem varnartengiliður.
Ekki er nú alveg öruggt að það takist að semja við núverandi klúbb hennar, FC Old Hags. En það ætti að gleðja aðdáendur Spartakus að hún hefur staðið í launadeilu við klúbbinn sinn og beðið um sölu fyrir komandi tímabil. Það ætti því að auka líkur á því að þessi draumaleikmaður verði fenginn til liðsins.
Stjóri Spartakusar hefur oft að undanförnu sagst hafa mikinn áhuga á því að styrkja hópinn og neitaði ekki þessum sögusögnum þegar blaðamaður frá www.fotboltabull.ur.net skaut þessari spurningu að honum þegar þeir hittust á klósettinu í bíó í gær á myndinni Bambi. Tjaa, hún er frábær leikmaður, hef ég heyrt. En við erum svo stór og ríkur klúbbur að það eru næstum allir orðaðir við okkur þessa dagana.... Ekki fengust fleiri slúðurfréttir frá honum þarsem hann var upptekinn við ýmsar öndunaræfingar. Blaðamaður náði að finna gamla mynd af Magdalenu á æfingu með þáverandi einkaþjálfara sýnum Boris Bomban í Úralfjöllum. Við munum birta fleirri fréttir af þessu máli og öðrum þegar þau birtast.
Guðmann fyrrum blaðasnápur frá DV skrifar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.4.2006 | 19:42
Meistarar erftir langa langa langa bið
Það var enginn okkar fæddur fyrir 34 árum síðan (Nema Gummi og Helgi, jú).
En í dag lauk bið okkar Viktors, Jóa, Adda og allra hinna. Þökk sé Jóhanni G, Sigfúsi, Gumma Þ. þjálfara, Kjartani Frænda og öllum þeim hinum þá er Fram Íslandsmeistari í handbolta (já, handbolta, án gríns!). Þrátt fyrir að vera nánast farnir á taugum þá rústuðu þeir Víkingi eða eitthvað með 10 mörkum eða eitthvað.
Við höfum greitt vorar skuldir
dag eftir dag
afplánað voran dóm
án þess að hafa framið nokkurn glæp
Framið slæmar skissur
bara þó nokkuð margar
ÉG lít á það sem sigur frammi fyrir mannskepnunni
Og ég er sko hræddur að tapa
ÞVÍ VIÐ ERUM BESTIR
VIÐ ERUM FRAM!!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.4.2006 | 19:06
Gonþaleþ mættur
Spartakusmenn, hamrið járnið meðan það er heitt, mætum á æfingar og skrifum pistla!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.4.2006 | 16:13
Matthias mættur
Kæru félagar
Núna undanfarið hef ég með góðfúslegu leyfi stjórnarinnar fengið að skrifa sem gestur inn á virðulegri bloggsíðu Spartakus. Finnst mér komin tími til að kynna mig og jafnframt hvetja aðra félagsmenn að láta í sér heyra.
Kær kveðja Matthias
Bloggar | Breytt 30.4.2006 kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2006 | 11:53
Ég rek "þröngt skip"!!!
Í ljósi nýgerðrar könnunar gallup á úthaldi og formi leikmanna kom í ljós að ástand leikmanna liðsins er vægast sagt skelfilegt. Stjórnin ákvað á krísufundi í fyrradag að leita utanaðkomandi aðstoðar í að koma mönnum í form. Ákveðið var að bjóða verkið út og hagstæðasta tilboðið barst frá heilsurækt Gústa sem staðsett er í Stykkishólmi. Stjórnin hefur tekið tilboði þessu og var skrifað undir samninga á sjöunda tímanum í gær. Ágúst Rúnarsson eigandi Heilsuræktar Gústa segist vera í skýjunum yfir að þetta skuli vera í höfn en þetta sé erfiðasta verkefni sem hann hafi tekist á við.
Ágúst:
"Já maður er náttúrulega ánægður að þetta sé í höfn en vá maður hvað strákarnir eru í lélegu formi. Hér verður sko járnagi og menn teknir í gegn. Ég rek "þröngt skip" og enginn kemst upp með eitthvað múður."
Að sögn Ágústar eða Gústa í ræktinni eins og hann er gjarnan kallaður þá hefjast æfingar á Sunnudag klukkan 10:30 í Garðabænum og skokkað verður í Stykkishólm.
Á myndinni sjáið þið að Gústi er einbeittur og tilbúinn í verkefnið.
Kveðja Matthias
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2006 | 19:10
Já nú er fjör!
Spartakus hefur á undanförnum árum notið gífulegrar velgengni og ákvað því stjórnin á fundi sínum í gær að skila einhverju til baka til samfélagsins. Mun því Hrafn ein stærsta stjarna klúbbsins vera með sundleikfimi fyrir eldri borgara í heita pottinum heima hjá sér. Albert Sveinsson eldri borgari sem búsettur er á Hrafnistu í Hafnarfirði lýst vel á uppátækið.
Albert:
"Þetta er alveg frábært og svo er Hrafn líka svo skemmtilegur og hress strákur."
Við minnum eldri borgara á næsta tíma sem er á þriðjudaginn klukkan 16:30 og biðjum fólk að mæta stundvíslega svo það missi ekki af upphituninni.
Kveðja Matthias
Bloggar | Breytt 29.4.2006 kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2006 | 18:10
Amerísk ofurskutla bendluð við Spartakus
Nýlega var hér á landi stödd ameríska ofurfyrirsætan Heather Landry, en hún er yngri tvíburasystir bróðurdóttur föðursystur hinnar þekktu Aly Landry. Þær frænkur ólust upp saman í Breux Bridge í Louisiana, þar sem hún kynntist einum liðsmanna, sjálfum Jóni Einari. Góð kynni tókust með þeim og síðar fékk þokkagyðjan að kynnast öðrum liðsmönnum í nærmynd. Hún vinnur nú að markaðssetningu Spartakusar í Norður-Ameríku á vegum MTV sjónvarpsstöðvarinnar.
www.fotboltabull.ur.net tók Heather tali nýlega og er það viðtal birt hér með góðfúslegu leyfi þeirra vina okkar á þeirri síðu:
BLM: Hvernig stóð að því að þið Jón Einar kynntust?
HL: Veistu, ég bara man það ekki. Og hann ekki heldur. Við vorum bara svo full, eða eitthvað, skilurðu? En það skiftir engu, við fílum hvort annað svo ógðeslega vel og svo eru þeir alveg rosalega kúl þessir vinir hans.
BLM: Og af hverju ertu svona svakalega lík frænku þinni?
HL: Hva, hefur þú aldrei heyrt um DNA? Svo erum við jafn gamlar og frá sama bænum í sama fylkinu og sama landinu.
BLM: Hvað hefur þú verið að gera hér á Íslandi í þessari ferð?
HL: Nú, djúsa með gæjunum og svona. Svo fékk ég að mæta á æfingu og allt. Fór meira segja í heita pottinn með Jóni R og Einari. Þeir voru rosa kúl á því, meira segja þegar við föttuðum að sundbolurinn minn gleymdist heima. Rosa næs gæjar, meira segja Einar hann...úbbs nú má ég ekki segja meira.
BLM: Eru þeir þá uppáhalds leikmenn þínir?
HL: Ja, sko, ég veit ekki. Fyrst voru það nátturulega bræðurnir, báðir í einu og allt. En svo fattaði ég Rikka, hann er svo stór.
BLM: Hvernig stór?
HL: Bara, stór, alveg sama hvernig maður pælir í því. Stór stór bara. Svo eru þeir gömlu algert æði, þeir eru alger kjútípæs.
----
Seinni hluti viðtalsins birtist síðar um helgina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.4.2006 | 18:08
Frí áfylling fyrstu vikuna
Eftir fall krónunnar og síaukna heimsku stjórnvalda hefur eldsneytisverð hækkað úr öllu valdi. Borið hefur á því að fátækir námsmenn séu farnir að nota tvo jafnfljóta og JAFNVEL almenningsvagna. Þetta ástand er jafnvel orðið óbjóðandi fyrir nýríka bubba sem eru nýbúnir að kaupa dýrindis jeppa frá USA á góðu verði. Ég meina, hver gerði ráð fyrir því að þurfa reka svona bensínháka, hvað þá á þessu verði.
Undirritaður rakst á netvafri sínu á ágætishugmynd til að minnka rekstrarkostnað kæru landsmanna. Það hefur verið að færast í aukið mæli í USA að fólk bruggi sitt eigið eldsneyti sjálft. Hvernig væri að gera það? Það eru til heimasíður á netinu sem kenna fólki að brugga Etanól sem gæti kostað þriðjung eða jafnvel minna af því sem við erum að borga í dag. Nú ef það leggst illa í fólk að leggjast út í svo miklar aðgerðir þá getur fólk komið við á æfingu Spartakusar og tappað af Metan Það er nóg af því þar. Nú er bara að bíða eftir föstum æfingatíma og í framhaldi af því mun átöppunartími verða auglýstur.
Fyrir hönd Samtakana um Bensínlaust Ísland
Osómi Ich Bin Latur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.4.2006 | 17:55
Óeirðir í Evrópu raktar til Spartakus
Heyrst hefur að hið nýja uppátæki einnar stjörnu liðsins að fá sér ljósar strípur hafi sett af stað æði í Evrópu. Hárgreiðslumenn hrista bara hausinn og segjast aldrei hafa lent í öðru eins. Hans Gruber hársnyrtir í tékkneska þorpinu pluve segir ástandið ógnvæglegt.
Hans:
"Maður er nú bara hlessa það vilja bara allir ljósar strípur. Aflitunarefnið er löngu uppselt og ég hef þurft að vísa fólki frá í tugatali."
Óeirðir brutust út í Hamborg þegar fréttist að ekki yrðu fleiri strípaðir þessa vikunna þar sem nýjar birgðir af aflitunarefni bærust ekki í tæka tíð.
Kveðja Matthias
Bloggar | Breytt 29.4.2006 kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar